Fyrri skrif

þriðjudagur, 23. nóvember 2010

Laugardagskvöld í San Cristobal


Kvöldið byrjaði með því að margir af gistiheimilinu settust saman að spjalli umhverfis eldstæðið sem er fyrir miðjum garðinum þar sem að margar frábærar sögur báru á góma. Eftir nokkuð marga bjóra var haldið á vit næturlífsins og stefnan sett á ákveðin bar sem heitir Revolucion, en þar var verið að halda uppá 100 ára byltingarafmæli landsins. 
Þar lenti ég í hrókasamræðum við mexíkana, spánverja og franska konu sem voru öll sömul hið vænsta fólk. Eftir nokkra dansa við þá frönsku ákvað ég að skella mér á næsta bar sem er salsabar. Eftir að hafa verið þar um tíma endaði ég í hrókasamræðum við heimamenn sem voru hinir sprækustu. 
Á leiðinni tilbaka að gistiheimilinu mætti ég einum mexíkana og við hófum samræður. Ég bauð honum íslenskt neftóbak og eftir smástund byrjaði hann að segja mér frá því að hann hefði verið hreinsunarmaður (leigumorðingi) fyrir mafíuna þegar hann var yngri. Ég tók því fálega en hálfsannfærðist þegar hann sýndi mér nokkur trikk úr verkbók sinni með því að taka aðeins á mér. Við spjölluðum í 40 mín eða þangað til ég sagðist þurfa koma mér í háttinn enda klukkan farin að ganga 6 um morguninn, Ég kvaddi hann með því að gefa honum enn og aftur í nefið og við skyldum sáttir. 
Þegar ég síðan kem inn í herbergið þar sem ég hafði svefnaðstöðu, finn ég þessa líka svakalegu skítafýlu. Ég hélt í fyrstu að annar þeirra sem þegar voru komnir til hvílu hefði losað vind svo um munaði en áttaði mig fljótlega að svo var ekki. Eina ályktunin sem ég gat dregið af þessum óþef var því að annar þeirra hefði hreinlega gert í brækurnar. Ég fékk manninn í afgreiðslunni til að koma með mér inn í herbergið til að staðfesta það sem ég hélt og hann féllst á mína útskýringu. Hins vegar gat hann ekki gefið mér annað rúm til að sofa í þar sem að allt var bókað, þannig að ég svaf í sjónvarpsholinu þann morgun. 
Daginn eftir hafði ég sterkar grunnsemdir hver þeirra hefði lent í þessari skelfilegu lífsreynslu, en það hlaut að vera sá sem að skipti um herbergi fyrir komandi nótt :)

2 ummæli:

  1. Það er gott að hann sýndi þér ekki öll trikkin í verkbókinni sinni þá hefðir þú kannski ekki lifað það af ;)
    Og skítalyktin var það ekki bara rotnunarlykt af líki sem gleymst hafði í herberginu í nokkra daga (ekkert verið að þrífa herbergin á hverjum degi)
    Kv. Danni frændi

    SvaraEyða
  2. Þetta var ágætist náungi sem þurfti bara að spjalla smá ;)

    Skítalyktin var mannaskítslykt, það er alveg á (ó)hreinu!

    Skilaðu góðri kveðju til Smára frá mér :)

    SvaraEyða